Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði verður með sína árlegu flugeldasölu fyrir áramótin.

Salan verður í skemmu sveitarinnar við Tjarnargötu 18 eins og í fyrra.

Einnig er hægt að panta flugelda á vefnum strakar.flugeldar.is þar sem hægt er að skoða myndbönd og sjá hvernig skotkökurnar virka, og sækja svo pöntunina í skemmuna við Tjarnargötu 18.

Virðum sóttvarnarreglur og förum varlega.

Opnunartímar flugeldasölu Stráka:

Þriðjudagur 28. desKl. 18:00 – 20:00
Miðvikudagur 29. desKl. 18:00 – 20:00
Fimmtudagur 30. desKl. 13:00 – 21:00
Gamlársdagur 31. desKl. 13:00 – 16:00

Björgunarsveitin Strákar þakkar fyrir stuðninginn á árinu og hvetur fólk til að fara varlega um áramótin.

Gleðilegt nýtt ár, Björgunarsveitin Strákar Siglufirði.