Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna hafa undirritað samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna. Það voru þau Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, og Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Hyrnu, sem undirrituðu samninginn í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli í dag.

Verkáætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í lok mars næstkomandi og þeim verði lokið í byrjun ágúst 2023. Verkefninu er skipt niður í þrjá áfanga. Sá fyrsti snýr að nýrri viðbyggingu við flugstöðina. Í öðrum áfanga verður núverandi komusvæði flugstöðvarinnar endurbyggt og þar er áætlað að nýtt innritunarsvæði verði. Nýtt skyggni og töskubílaskýli verður þá einnig byggt með tilheyrandi malbikun. Í þriðja og síðasta áfanga verða núverandi innritunarsvæði og skrifstofuhluti endurbyggð.

„Það er afar ánægjulegt að taka þetta næsta og mikilvæga skref í uppbyggingu Akureyrarflugvallar,“ segir Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla. „Hér er um stórt verkefni að ræða, nánar tiltekið þessi 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina og um leið bætt aðstaða fyrir lögreglu, toll, fríhöfn og veitingastað. Þjónustan við farþega og flugfélög batnar til muna og við hlökkum til að taka þessa breyttu og bættu flugstöð í gagnið síðsumars 2023.“

„Við hjá Hyrnu erum afar spennt að hefjast handa við þetta mikilvæga verkefni,“ segir Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Byggingafélagsins Hyrnu. „Verkáætlun liggur fyrir og okkar fólk reiðubúið að setja allt í gang. Það er einkar ánægjulegt að taka þátt í að hleypa þessu verkefni af stokkunum hér í dag. Þetta er eitt af mínum síðustu verkefnum hjá Hyrnu nú þegar ég læt af störfum um áramótin eftir rúmlega fimm áratuga starf. Það verður ánægjulegt að sjá þessa stækkun rísa.“

Mynd/aðsend