Föstudaginn 28. desember fer fram uppskeruhátíð íþróttafólks í Fjallabyggð þegar valið á Íþróttamanni ársins í Fjallabyggð fer fram. Hátíðin í ár fer fram í Tjarnarborg og hefst kl 20:00 og verður FM Trölli með beina útsendingu frá hátíðinni. Hlusta hér

Hátíðin er samstarfsverkefni UÍF (Ungmenna- og Íþróttasamband Fjallabyggðar) og Kiwanisklúbbsins Skjaldar í Fjallabyggð. Á hátíðinni verður fjölmargt íþróttafólk verðlaunað fyrir árangur sinn á árinu.

Öll aðildarfélög UÍF gátu tilnefnt íþróttafólk í þremur flokkum, þ.e. besti íþróttamaður greinarinnar (19 ára og eldri), ungur og efnilegur í íþróttagreininni og loks ung og efnileg í íþróttagreininni (13-18 ára). Tíu af þrettán aðildarfélögum tilnefndu í einum eða fleiri flokkum. Íþróttamaður Fjallabyggðar verður svo valinn úr þeim hópi íþróttafólks sem var tilnefnt í flokknum besti íþróttamaður hverrar greinar, Elsa Guðrún Jónsdóttir skíðagöngukona varð fyrir valinu árið 2017. Að lokum verða tveir aðilar heiðraðir sérstaklega á hátíðinni. Annar fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþróttamála í Fjallabyggð og hinn fyrir frábæran árangur í sinni íþróttagrein.

Hér að neðan má sjá lista yfir allt það íþróttafólk sem tilnefnt er í ár, en alls eru 39 einstaklingar tilnefndir. Hátíðin er öllum opin og hvetjum við áhugasama til að mæta á þessa árlegu uppskeruhátíð, þó sérstaklega alla þá sem tilnefndir eru.

Eftirtaldir aðilar eru tilnefndir í ár:

Alexander Smári Þorvaldsson, Alexandra Nótt Kristjánsdóttir, Amalía Þórarinsdóttir, Anna Brynja Agnarsdóttir, Anna Kristinsdóttir, Anna María Björnsdóttir, Álfheiður Líf Friðþjófsdóttir, Björg Traustadóttir, Dýrleif Sævarsdóttir, Einar Ingi Óskarsson, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Fylkir Þór Guðmundsson, Gísli Marteinn Baldvinsson, Grétar Áki Bergsson, Halldór Ingvar Guðmundsson, Halldóra Helga Sindradóttir, Helena Reykjalín Jónsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Helgi Már Kjartansson, Hilmar Símonarson, Hjalti Snær Njálsson, Hrannar Snær Magnússon, Hörður Ingi Kristjánsson, Jakob Auðun Sindrason, Jón Frímann Kjartansson, Marlis Jóna Karlsdóttir, Mikael Sigurðsson, Oddný Halla Haraldsdóttir, Ólafur Björnsson, Patrick Gabríel Bors, Ronja Helgadóttir, Rögnvaldur Jónsson, Sara Sigurbjörnsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, Sunna Karen Jónsdóttir, Steinunn Heimisdóttir, Sveinn Þór Kjartansson, Sævar Fylkisson, Unnsteinn Sturluson.

 

Elsa Guðrún Jónsdóttir íþróttamaður ársins í Fjallabyggð 2016 og 2017

Forsíðumynd: pixabay