Nýtt Framleiðsluráð Samtaka iðnaðarins var skipað á ársfundi ráðsins sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Formaður ráðsins er Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar​. Aðrir í ráðinu eru Einar Sveinn Ólafsson, Ískalk​, Sigurður Gunnarsson, Ístex​, Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir, Prentmet​, Guðrún Halla Finnsdóttir, Norðurál​, Andri Daði Aðalsteinsson, Límtré-Vírnet​, og Reynir Bragason, Össur​.

Björni Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar:
„Það er með mikilli ánægju sem ég tek að mér formennsku í Framleiðsluráði SI. Það reynir mikið á íslenskan framleiðsluiðnað nú þegar efnahagslífið er að taka við sér að nýju að loknum heimsfaraldri þó það séu blikur á lofti vegna stríðsátaka í Evrópu. Þetta er umfangsmikil atvinnugrein þar sem starfa um 17.600 manns sem er um 8% af heildarfjölda starfandi í hagkerfinu. Velta framleiðsluiðnaðar á Íslandi er 830 milljarðar króna. Það er jákvætt að viðsnúningur er að verða í framleiðsluiðnaði hér á landi líkt og í öðrum ríkjum. Eftirspurnin er að aukast en á sama tíma eru miklar áskoranir sem felast meðal annars í hækkun á verði hrávara og flutninga.“ 


Aðsent