Plötuspilarinn verður í beinni útsendingu frá Studio 7 á Englandi í dag kl. 17.

Þá mun Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, bjóða hlustendum upp á einstaka tónlistarblöndu eins og honum einum er lagið. 

Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru David Bowie, Gloria Jones, Írafár, Lola Lennox, Pirra, Swizz, Tom Grennan, og Zöe.

Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því. 

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is