Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem gera á tillögu að stefnu um fóstur- og nýburaskimun. Í stefnunni skal koma fram fyrir hverju eigi að skima, hvenær skuli boðið upp á skimun, hvernig hún skuli framkvæmd og hvar. Hópnum er einnig ætlað að fjalla um fósturvísagreiningar. Formaður starfshópsins er Henry Alexander Henrysson.

Í vinnu sinni skal hópurinn líta til hvernig veita megi bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu, með tilliti til  aðgengis að þjónustu og nýjustu tækni og vísinda. Þá skal sérstaklega horft til siðferðilegra álitamála.

Hópnum er einnig ætlað að hafa hliðsjón af stefnum annarra þjóða á sviði fóstur- og nýburaskimunar.

Heilbrigðisráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið stóðu saman að málþingi um fóstur- og nýburaskimun í september síðastliðnum þar þessi mál voru rædd frá sjónarhóli tækni, vísinda og læknisfræði, fötlunarfræða, félags- og kynjafræða, heimspeki og siðfræði. Markmið þingsins var að efna til opinnar umræðu um þetta flókna viðfangsefni og draga fram sem flest sjónarmið.

Upptaka frá þinginu er aðgengileg á vef ráðuneytisins.

Stjórnun og rýni vinnunnar

Starfshópnum er skipt í stýrihóp og rýnihóp. Stefnumótunarvinnan verður leidd af stýrihópnum og rýnihópurinn mun fara yfir vinnu stýrihópsins og gera tillögur að breytingum telji hann þess þörf, áður en niðurstöðum er skilað til ráðherra. 

Stýrihópinn skipa:

  • Henry Alexander Henrysson, án tilnefningar, formaður
  • Hrefna Þengilsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
  • Sigurlaug Benediktsdóttir, tilnefnd af Landspítala
  • Elísabet Gísladóttir, tilnefnd af félags- og vinnumarkaðsráðuneyti
  • Ragnheiður Bachmann, tilnefnd af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
  • Kristín Ninja Guðmundsdóttir, án tilnefningar

Starfsmaður stýrihópsins er Andrea Jónsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.

Rýnihópinn skipa:

  • Hulda Hjartardóttir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
  • Kristín Rut Haraldsdóttir, tilnefnd af Ljósmæðrafélagi Íslands
  • Guðrún Helga Harðardóttir, tilnefnd af Einstökum börnum
  • Guðmundur Ármann Pétursson, tilnefndur af Félagi áhugafólks um Downs heilkennið
  • Unnur Helga Óttarsdóttir, tilnefnd af Landssamtökunum Þroskahjálp

Starfshópurinn skal skila niðurstöðum sínum til ráðherra fyrir 1. október 2025.

Mynd/aðsend