Frábær þátttaka er á námskeið í grúski sem Héraðsbókasafnið og Héraðsskjalasafnið standa fyrir og hófst 16. janúar.

Alls eru 26 þátttakendur skráðir og verður því brugðið á það ráð að tvískipta hópnum í tveimur seinni tímunum sem verða í næstu og þarnæstu viku. Mætir því hluti hópsins tvo þriðjudaga í viðbót og hluti tvo fimmtudaga.

Það eru Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Sólborg Una Pálsdóttir sem leiðbeina á námskeiðinu.

Í fyrsta tíma var einkum farið yfir heimildaleit á vefsíðum, en í framhaldinu verður fjallað um heimildaleit í bókasafninu og skjalasafninu og loks hvernig koma má því efni sem grúskað er í á framfæri.

Mynd/ af vefsíðu Héraðsbókasafns Skagafjarðar