Fræðslufundur um fikniefni og fíkniefnaneyslu verður haldinn í Tjarnarborg 29. apríl nk. kl. 19:30. Fræðslan er í samvinnu við Lögregluna á Norðurlandi eystra, Grunnskóla Fjallabyggðar og Menntaskólann á Tröllaskaga. Á fundinn mæta fulltrúar fíkniefnateymis lögreglunnar.

Fundurinn er öllum opinn og eru foreldrar grunn- og framhaldsskólanemenda sérstakalega hvattir til að koma. Málið varðar okkur öll. Fulltúar sveitarstjórnar, heilbrigðisstofnunar, félagsþjónustu og hverjir þeir sem tilbúnir eru til að leggja hönd á plóginn eru hvattir til að koma á fundinn.

Tökum samtalið um þennan vágest í samfélagi okkar – sjáumst mánudagskvöldið 29. apríl kl. 19.30 í Tjarnarborg

Deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála.

Grunnskóli Fjallabyggðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga.