Gefin hafa verið út frístundakort vegna ársins 2022 fyrir börn á aldrinum 6-18 ára sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra.
Foreldrar/forráðamenn þurfa að sækja kortin á skrifstofu Húnaþings vestra að Hvammstangabraut 5, Hvammstanga og kvitta fyrir móttöku þeirra.
Þeir sem vilja nýta kortið sem innborgun á tónlistarskólagjöld geta sent tölvupóst þess efnis á netfangið: skrifstofa@hunathing.is
Athugið að frístundakortin renna út 15. desember ár hvert og því er æskilegt að búið sé að ráðstafa frístundakortunum fyrir 10. desember 2022.
Foreldri/forráðamaður þarf að framvísa persónuskilríki til að fá kortið afhent. Skila þarf inn skriflegu umboði ef afhenda á kortið öðrum en foreldri/forráðamanni.
Reglur um notkun frístundakortanna er að finna á vefsíðu sveitarfélagsins undir reglugerðir og samþykktir.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400.