Þriðjudaginn 26. apríl fór fram vígsla á nýbyggingu fyrir grunnskóla og tónlistarskóla Húnaþings vestra.

Flutt voru stutt ávörp og nemendur og kennarar tónlistarskóla og grunnskóla flutt tónlistaratriði.

Forseti Íslands talaði til nemenda og gaf sér svo tíma til að spjalla við þá og þeir fengu að taka myndir af sér með honum.

Fallegur, góður og hátíðlegur dagur enda tilefnið stórt. Sveitarstjórn færði skólunum hljóðkerfi að gjöf í tilefni dagsins og bauð upp á kaffiveitingar.

Fjölmargir nýttu sér svo opið hús í kjölfarið og skoðuðu nýju bygginguna.

Hér má sjá dagskrá dagsins og myndir frá vígslunni.

Myndir/Húnaþing vestra