Söngkeppni Samfés 2021 fer fram í dag, sunnudaginn 9. maí nk. kl. 15.00 í beinni útsendingu á Rúv frá Bíóhöllinni á Akranesi.

Keppandi Neon, Helena Reykjalín Jónsdóttir er önnur á svið með lagið Creep.

Engir áhorfendur eru leyfðir á keppninni en netkosningin Rödd fólksins fer fram á vef Ungrúv eftir helgina. Kosning hefst mánudaginn 10. maí kl. 16:00 og lýkur miðvikudaginn 12. maí kl. 22:00 og verða þá úrslit netskosningar tilkynnt á miðlum Samfés.

Fjallabyggð hvetur alla íbúa til að fylgjast með söngkeppninni og framlagi þessarar efnilegu söngkonu sem er fulltrúi Neons í ár og einnig að taka þátt í netkosningu eftir helgina.

Mynd/ af vefsíðu Fjallabyggðar