Fundur um stöðuna á íbúðamarkaðinum með þátttöku innviðaráðherra og fulltrúum sveitarstjórna
Samtök iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun boða til fundar um stöðuna á húsnæðismarkaði mánudaginn 3. október kl. 14–16 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík. Fjölmiðlar eru velkomnir.
Á fundinum sem ber yfirskriftina Íbúðamarkaður á krossgötum verður kynnt ný talning á íbúðum í byggingu á landinu öllu auk þess sem horft verður til framtíðar nú þegar skrifað hefur verið undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu 35.000 nýrra íbúða á næstu 10 árum.
Dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
- Elmar Þór Erlendsson, teymisstjóri hjá HMS
- Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri hjá HMS
Pallborðsumræður
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra:
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur
- Nanna Kristín Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Hyrna
- Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs
- Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, er fundarstjóri
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sími 8990517, sigurdur@si.is
Elmar Þór Erlendsson, teymisstjóri hjá HMS, sími 843 8054, elmar.erlendsson@hms.is