Fundur um stöðuna á íbúðamarkaðinum með þátttöku innviðaráðherra og fulltrúum sveitarstjórna

Samtök iðnaðarins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun boða til fundar um stöðuna á húsnæðismarkaði mánudaginn 3. október kl. 14–16 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík. Fjölmiðlar eru velkomnir.

Á fundinum sem ber yfirskriftina Íbúðamarkaður á krossgötum verður kynnt ný talning á íbúðum í byggingu á landinu öllu auk þess sem horft verður til framtíðar nú þegar skrifað hefur verið undir samkomulag ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu 35.000 nýrra íbúða á næstu 10 árum.

Dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Friðrik Ágúst Ólafsson, viðskiptastjóri hjá SI
  • Elmar Þór Erlendsson, teymisstjóri hjá HMS
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, teymisstjóri hjá HMS

Pallborðsumræður

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra:
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs Reykjavíkur
  • Nanna Kristín Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri byggingarfélagsins Hyrna
  • Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs
  • Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, er fundarstjóri

NÁNARI UPPLÝSINGAR: 

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sími 8990517, sigurdur@si.is

Elmar Þór Erlendsson, teymisstjóri hjá HMS, sími 843 8054, elmar.erlendsson@hms.is