Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest að veiðitímabil rjúpu verður frá 20. október – 21. nóvember í ár. Heimilt verður að veiða rjúpu frá og með föstudögum til og með þriðjudögum á því tímabili.
Ítrekað er að sölubann er á rjúpum og á það jafnt við um sölu til endursöluaðila og annarra.
Síðastliðið ár hefur farið fram vinna við stjórnunar- og verndaráætlun rjúpu og nýtt stofnlíkan fyrir rjúpnastofninn. Dr. Fred Johnson, bandarískur sérfræðingur í líkanagerð og veiðistjórnun við Háskólann í Árósum og Háskólann í Flórída hefur leitt vinnuna og unnið að nýju og endurbættu stofnlíkani. Markmið með nýrri stjórnunar- og verndaráætlun og nýju stofnlíkani er að efla faglegan grunn veiðistjórnunar, efla traust meðal hagsmunaaðila og stofnana og að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika í árlegri veiðistjórnun. Gert er ráð fyrir að stjórnunar- og verndaráætlun verði skilað til ráðherra á næstu vikum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Ég er mjög ánægður með þá vinnu sem hefur átt sér stað síðastliðið ár í tengslum við gerð stjórnunar- og verndaráætlun fyrir rjúpnastofninn. Sú vinna hefur verið unnin af vinnuhópi sem samanstendur af þeim opinberum stofnunum sem koma að málefninu, ráðuneytinu og hagsmunaaðilum. Vinnunni er ekki lokið og mun hún halda áfram í vetur. Ég bind miklar vonir við að stjórnunar- og verndaráætlun og nýtt stofnlíkan muni gera veiðistjórnun fyrir rjúpuna gagnsærri og fyrirsjáanlegri í framtíðinni.“
Stefna stjórnvalda er að nýting rjúpnastofnsins, líkt og annarra auðlinda, skuli vera sjálfbær. Jafnframt skuli rjúpnaveiðimenn stunda hóflega veiði til eigin neyslu. Til að vinna að sjálfbærri veiðistjórnun eru stundaðar mikilvægar rannsóknir og vöktun á stofninum og fyrir hendi er stjórnkerfi til að stýra veiðinni að viðmiðum um hvað telst sjálfbær nýting.
Verndarsvæði verður á SV-landi líkt og undanfarin ár, en vinna er hafin við endurskoðun þess.
Er veiðimönnum bent á að kynna sér takmarkanir á veiðum á friðlýstum svæðum og eru þeir hvattir til góðrar umgengi um náttúru landsins.
Mynd/ Hugi Ólafsson