Fræðslan Fokk me-Fokk you fjallar um sjálfsmynd, samfélagsmiðla og samskipti kynjanna. Hún er ætluð unglingum og ungmennum, foreldrum þeirra og aðstandendum og starfsfólki sem starfar með unglingum. Í fræðslunni er fjallað um sjálfmyndina og nemendur vaktir til umhugsunar um hvað það er sem hefur áhrif á okkur frá degi til dags. Rætt er um hve mikilvægt það er að sýna hvert öðru virðingu og virða mörk annarra.

Þriðjudaginn 9. april nk. býður foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar forsjáðilum á fyrirlesturinn. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal MTR þriðjudaginn 9. apríl kl. 20:00

Miðvikudaginn 10. apríl nk. munu þau Kári og Andrea svo flytja fyrirlestur sinn í Grunnskólanum á Ólafsfirði fyrir nemendur miðstigs og unglingastigs, í sitthvoru lagi.