Miðvikudaginn 26 maí sl. voru haldnir burtfararprófstónleikar Elvars Loga Friðrikssonar í Blönduóskirkju. Logi þreytti framhaldspróf í klassískum söng undir leiðsögn Ólafs Rúnarssonar söngkennara og Elinborgar Sigurgeirsdóttur fv. skólastjóra og tónfræðikennara, voru tónleikarnir hluti af því.

Þetta er í fyrsta skipti sem nemandi þreytir framhaldspróf í söng frá Tónlistarskóla Húnaþings vestra og er þetta því stór áfangi.

Elvar Logi fékk frábæra einkunn eða 9.2 í prófinu. Meðleikari var Eyþór Franzson Wechner og með honum á gítar í tveimur lögum var Höskuldur Sveinn Björnsson.

Myndir/ Húnaþing vestra