Á árinu 2024 gáfu Hollvinir Sjúkrahúsinu á Akureyri tækjabúnað að andvirði tæplega 62 milljóna króna. Gjafirnar bæta starfsaðstöðu starfsfólks SAk og gerir þeim kleift að bæta þjónustu við sjúklinga.  

„Gjafirnar skipta sköpum fyrir starfsemina og sýna í verki hversu mikilvægt sjúkrahúsið er í augum samfélagsins okkar,“ segir Ragnheiður Halldórsdóttir framkvæmdastjóri lækninga og tengiliður við Hollvini. 

Besta mögulega tækni til sjúklinga 

Á haustmánuðum afhentu Hollvinir skurðstofum sjúkrahússins tvær glænýjar speglunarstæður sem koma í stað eldri tækja sem voru úr sér gengin. Andvirði stæðanna nemur 28 milljónum króna og styrkir verulega aðstöðu skurðstofanna til að veita skjólstæðingum bestu mögulegu meðferð. 

Speglunarstæður eru notaðar til að gera ýmiskonar aðgerðir þar sem hægt er að komast af með litla skurði. Þær veita bestu mögulegu tækni til að meðhöndla vandamál við góðar og öruggar vinnuaðstæður sem tryggja enn betur öryggi skjólstæðinga. 

Myndavél er stungið inn í líkamshol ásamt áhöldum. Sem dæmi um slík inngrip eru aðgerðir í kviðarholi, á gallblöðru, botnlanga, kvenlíffærum, ristli og smágirni, en einnig liðspeglanir, legholsspeglanir, maga- og ristilspeglanir, blöðruspeglanir og aðgerðir á nýrnasteinum.  

Nýr hitakassi á barnadeild

Barnadeildin fékk nýjan og fullkominn hitakassa af gerðinni Babyleo frá Dräger að gjöf rétt fyrir jól og mun hann bæta meðferð og umönnun á hágæslu nýbura. Nýi hitakassinn er bæði notendavænn og auðveldur í umgengni og leysir af hólmi eldri gerð sem kominn var til ára sinna og ekki lengur hægt að fá varahluti í. 

Tvær þvottavélar á speglunardeild

Í október færðu Hollvinir speglunardeild nýjar þvottavélar. Starfsfólk segir mikilvægt að geta haldið úti ristil- og magaspeglunum með almennilegum þvottavélum fyrir tækin. 

Öndunarmælingatæki til betri greininga 

Hollvinir gáfu einnig öndunarmælingatæki á rannsóknastofu lífeðlisfræðideild sem bætir greiningu og meðferð sjúklinga með öndunarvandamál. Nýja tækið (Vintus One) gefur möguleika á mismunandi tegundum öndunarmælinga, s.s. fráblástursmælingu, loftdreifiprófi, mælingu á rúmmáli lungna og sveiflumælingu.  

Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar Hollvinum innilega fyrir þeirra mikilvæga framlag og veittan stuðning. Þessar gjafir endurspegla einstakan samfélagslegan samtakamátt samtakanna. 

Tenglar á nánari upplýsingar: 

Sjúkrahúsið á Akureyri hvetur alla sem vilja styðja við starf sjúkrahússins að gerast Hollvinur. Árlegt styrktar- og árgjald er 6.000 kr. og er innheimt í maí með greiðsluseðli í heimabanka. Einnig taka samtökin við frjálsum framlögum. Saman gerum við gott betra.  

Smellið hér til að gerast Hollvinur.

Myndir og heimild/SAk