Matvælastofnun vekur athygli neytenda á innköllun á Ora fiskbúðingi vegna galla í dósum. Ora hefur innkallað framleiðslulotur með tveimur best fyrir dagsetningum, í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Innköllunin nær til eftirfarandi vöru:
- Vöruheiti: Ora Fiskbúðingur í 1/1 dós
- Strikamerki: 5690519000032
- Nettóþyngd: 855g
- Lotunúmer: L1C1561, L1C1562, L1C1563, L1C1071, L1C1072
- Best fyrir (BF): 17.04.2022 og 06.06.2022
- Framleiðandi: Ora ehf
- Ora fiskbúðingur
Neytendum sem keypt hafa Ora fiskbúðing með þessum lotunúmerum er bent á neyta hans ekki.
Neytendur geta skilað vörunni til ÍSAM, Tunguhálsi 11, 110 Reykjavík eða haft samband við gæðastjóra Ora í síma 522 2770 eða á netfangið helgam@ora.is.
Ítarefni
- Fréttatilkynning ORA
- Þessum upplýsingum átt þú rétt á – upplýsingaspjald Matvælastofnunar um merkingar matvæla
- Listi Matvælastofnunar yfir innkallanir