Það er aldrei of seint að fagna fjölbreytileikanum.

Því miður náðist ekki að mála gangbrautir í byggðarkjörnunum fyrir síðustu helgi í regnbogalitum vegna bleytu en ákveðið var að mála engu að síður þó Hinsegin dagar hafi verið í síðustu viku.

Fjallabyggð flaggaði regnbogafánum sl. laugardag og í vikunni voru gangbrautir í báðum byggðarkjörnum málaðar.