Garðsláttur fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja í Fjallabyggð.

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur  samþykk að bjóða upp á garðslátt á vegum þjónustumiðstöðvar Fjallabyggðar fyrir örorku- og ellilífeyrisþega með lögheimili í bæjarfélaginu. Gjald fyrir hvern slátt er 7.600, kr- á lóð undir 150m2 og 12.800, kr- á lóð yfir 150m2

Garðslátt skal panta á bæjarskrifstofunni og tekur þjónustufulltrúi á móti pöntunum í síma 464 910, netfang: fjallabyggd@fjallabyggd.is.

Gjaldskrá fyrir garðslátt (PDF)

Heimild og mynd: fjallabyggd.is