Hljómsveitin Hr. Eydís & Erna Hrönn hafa gefið út nýtt frumsamið lag, Maniac For Love, sem finna má á streymisveitum.
Lagið er komið í massíva spilun á FM Trölla.
Líkt og allt sem frá sveitinni kemur er lagið innblásið af ’80s-tímabilinu, með trylltum rock- og glam-hljómi. Maniac For Love var samið fyrir um tveimur árum og hefur verið í vinnslu síðan. Sveitin ákvað snemma að gefa laginu tíma til að þroskast og standa á eigin fótum, frekar en að fylgja hraða og straumum samtímans.
„Sko, á tímum þar sem ný lög verða til á augabragði með aðstoð gervigreindar förum við þveröfuga leið. Við gerum þetta á gamla mátann og Maniac For Love tók okkur tvö ár í vinnslu. Við gáfum lagið ekki út fyrr en við vorum hundrað prósent sátt við útkomuna. Við erum kannski gamaldags, en fyrir okkur er þetta eina leiðin. Gervigreindartónlist er einfaldlega ekki ’80s!“ segir Örlygur Smári með bros á vör.
Hr. Eydís & Erna Hrönn hafa á undanförnum árum skapað sér sterka stöðu á tónleikasviðinu með kraftmiklum lifandi flutningi á þeirri stórkostlegu og fjölbreyttu tónlist sem einkenndi tímabilið. Með Maniac For Love heldur sveitin áfram að þróa sitt eigið frumsamda efni á sömu forsendum, með skýra skírskotun í ’80s, en mótað með nútíma hljómi.
Maniac For Love er nú aðgengilegt á Spotify og öðrum helstu streymisveitum.
Hlusta: https://open.spotify.com/track/0qN5FIthJkVpsd9oeijtMe?si=3d077f37aabf466d
Instagram: @eydisband
Facebook: Hr. Eydís (hreydisband)
TikTok: @eydisband
YouTube: @eydisband



