Félagar í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar komu færandi hendi í stutta heimsókn í Leikskólann Leikhóla í gær, föstudaginn 16. apríl.

Tilefnið er árleg gjafa og styrkveitingar í tilefni af alþjóðlegum Rótarýdegi 23. febrúar sem að þessu sinni hvarf nánast vegna plágunnar sem nú geisar, líkt og hann gerði á síðasta ári. Þótti félögum því ráðlegra að tengja afhendingu gjafanna við afmælisdag klúbbsins, 17.apríl, en klúbburinn var stofnaður þann dag árið 1955.

Það er markmið félaga að láta gott af sér leiða sem víðast í samfélaginu og er gjöfin; hljóðfæri að þessu sinni hugsuð fyrir heill og hamingju barnanna, þar sem vitað er að tónlist og tónlistariðkun er mjög gagnleg í uppvexti og þroska barna.

Börnin tóku hljóðfærunum fegins hendi og fengu að prufa, en áður en að því kom sögðu Olga leikskólastjóri og K.Haraldur forseti Rótarýklúbbs Ólafsfjarðar nokkur orð og svo sungu börnin klassíska leikskólalagið; í leikskóla er gaman.

Eftir helgina er svo meiningin að fara í næsta skólastig fyrir ofan og færa nemendum þar þroskandi tæknihluti.

Eins og fólk kannast við hefur klúbburinn styrkt samfélagsverkefni í Ólafsfirði mörg undanfarin ár.

En á yfirstandandi starfsári er áhersla klúbbsins að tengja sig við ungt fólk og gera Rótarý sýnilegt fyrir alla, en einkum langar Rótarýfélaga að vekja athygli á Rótarýstarfi í hópum unga fólksins, eins og t.d. foreldrum barnanna.

Vonast Rótarýfélagar til að starfsfólk Leikhóla verður duglegt að segja frá þessu gjöfum og að þær muni koma að góðum notum.

Heimild/ K. Haraldur Gunnlaugsson
Myndir/ K.Haraldur og Svavar Berg