Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar boðar til aðalfundar mánudaginn 22. maí 2023 kl. 17:00 í skólahúsinu á Siglufirði.

Stjórnarmenn sem gefa áfram kost á sér eru Elfa Sif Kristjánsdóttir, Elsa Guðrún Jónsdóttir, Guðný Huld Árnadóttir og Hulda Teitsdóttir.

Björk Óladóttir og Guðrún Linda Rafnsdóttir gefa ekki kost á sér áfram og leitum við því að nýjum stjórnarmeðlimum.

Fundarefni:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Kosning stjórnarmanna
5. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
6. Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
7. Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
8. Önnur mál

Vonast er til að sjá flesta á aðalfundinum.
Léttar veitingar í boði.

Fyrir hönd stjórnar Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar
Björk Óladóttir, formaður