Ferðamenn hafa lengi sótt Siglufjörð heim og hefur gistimöguleikum fjölgað á undanförnum árum. Víða er boðið upp á heimagistingar og má finna umsagnir um þær á t.d. Airbnb.is.

Trölli.is skoðaði á dögunum umsagnir og einkunnir á vefsíðunni Booking.com á nokkrum gististöðum á Siglufirði og á Ólafsfirði.

Ekki er lagt mat á annað en upplifun gesta sem pantað hafa í gegnum Booking og gefið umsagnir, um starfsfólk, þægindi, aðstöðu, ókeypis WIFI, mikið fyrir peninginn, hreinlæti og staðsetningu.

Hér kemur upplifun gesta Hótel Sigluness (Siglunes Guesthouse)

Heildarumsögn gesta er upp á 8.3 og hefur sú einkunnargjöf lækkað töluvert síðastliðin 7 ár.

519 umsagnir hafa verið skráðar og er einkunn eftir einstökum flokkum þessi:

Mikið fyrir peninginn: 8,2
Aðstaða: 8,4
Ókeypis WIFI: 8,8
Hreinlæti: 8,9
Þægindi: 8,9
Starfsfólk: 9,0
Staðsetning: 9,1

Sjá fimm síðustu umsagnir sem skráðar hafa verið af gestum Hótel Siglunes