Gjöf til geðdeildar kemur sér vel á endurbættri deild.

Í tilefni þess að geðdeild SAk er að flytjast inn í nýuppgert rými kom raftækjaverslunin ELKO færandi hendi og gaf deildinni 65″ sjónvarp. Það mun nýtast deildinni sérlega vel inni í dagstofu sjúklinga.

Á forsíðumynd frá vinstri eru: Valborg Lúðvíksdóttir, aðstoðardeildarstjóri geðdeildar SAk, Bernard Hendrik Gerritsma, deildarstjóri geðdeildar SAk, Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ELKO Akureyri og Karl Ólafur Hinriksson, teymisstjóri húsumsjónar SAk.