Glæsilegt þriggja hæða parhús er til sölu í rólegu og eftirsóttu hverfi, Las Mesas, í Las Palmas á Gran Canaria.
Um er að ræða eign sem hentar vel þeim sem leita að rými, næði og þægindum, með rúmgóðum útisvæðum og aðskildu gestahúsi.
Við húsið er fallega hannaður garður um 364,4 fermetrar, sem liggur í U-laga formi umhverfis eignina. Útisvæði er bæði framan, til hliðar og aftan við húsið, en bakgarðurinn vekur sérstaklega athygli. Þar er meðal annars gervigras, ávaxtatré, notalegt slökunarsvæði og grillaðstaða.
Í bakgarðinum er einnig sjálfstætt gestahús með sérinngangi, þannig að ekki þarf að fara í gegnum aðalhúsið. Gestahúsið samanstendur af stofu með opnu eldhúsi, einu svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.
Aðalhúsið skiptist þannig:
Á aðalhæð er rúmgóð og björt stofa og borðstofa með rafmagnsarni sem myndar miðpunkt heimilisins og tengir saman önnur rými. Á hæðinni er einnig gestaherbergi, salerni og fullbúið, sjálfstætt eldhús með beinu aðgengi út í bakgarð, sem hentar vel til samveru og móttöku gesta. Frá stofu er aðgengi bæði upp á efri hæð og niður á neðri hæð.
Á efri hæðinni eru svefnrými hússins og eru þar fjögur svefnherbergi. Tvö þeirra snúa að bakgarði en hin tvö að rólegri götu sem aðallega er notuð af íbúum hverfisins. Eitt herbergjanna er með svölum sem bjóða upp á fallegt útsýni yfir græn svæði og glittir í hafið. Hjónaherbergið er með sérbaðherbergi með rúmgóðu baðkari, tvöföldum handlaugum og góðu fataherbergi.
Á neðstu hæð er beint aðgengi frá götu sem gerir kleift að leggja bifreið innan lóðar. Þar er rúmgóður bílskúr, þvottaaðstaða, geymsla og salerni.
Gestahúsið:
Gestahúsið hefur inngang beint inn í opið rými með stofu og eldhúsi. Til vinstri er svefnherbergi með stórum glugga sem tryggir góða birtu, og þar við hliðina er baðherbergi með góðri sturtu.
Meðal annarra kosta eignarinnar eru sólarsellur til hitunar vatns, vatnstankur, hreinsikerfi fyrir drykkjarvatn, vatnsmýkingarkerfi í baðherbergjum og loftkæling.
Eignin verður seld með húsgögnum eftir samkomulagi.
Á fasteignarsölunni NORDICWAY REAL ESTATE er eigandinn Birgitta Ósk Pétursdóttir og geta áhugasamir fengið góða þjónustu á íslensku.
Sjá allar nánari upplýsingar: HÉR




