Þrettándabrenna og flugeldasýning Kiwanisklúbbsins Skjaldar í samvinnu við Björgunarsveitina Stráka á Siglufirði og 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar verður á Siglufirði laugardaginn 6. janúar nk. kl. 18:00.

Blysför verður frá ráðhústorginu kl. 17:30 að brennu. Allir hvattir til að mæta í grímubúningum. Eftir brennu verður barnaskemmtun Kiwanis (grímuball) á Rauðku.