Félög eldri borgara í Fjallabyggð stóðu fyrir skemmtilegri dagsferð í Skagafjörð mánudaginn 23. júní síðastliðinn.

Ferðin hófst klukkan 09:40 þegar hópurinn lagði af stað frá Húsi eldri borgara í Ólafsfirði. Skömmu síðar, eða klukkan 10:00, bættist hópurinn frá Siglufirði við þegar lagt var af stað frá Torginu þar.

Dagskráin var bæði fjölbreytt og skemmtileg eins og myndirnar af facebooksíðu Félags eldri borgara á Siglufirði bera með sér og skipuleggjendum til sóma.

Fyrsti áfangastaðurinn var Bakkaflöt þar sem gestir nutu ljúffengs hádegisverðar sem samanstóð af heitri súpu og nýbökuðu brauði. Að því loknu var haldið áfram að Garðyrkjustöðinni Laugarmýri þar sem gestum gafst kostur á að kynnast starfsemi stöðvarinnar, fræðast um ræktun og skoða gróðurhúsin.

Eftir fróðlega heimsókn í Laugarmýri lá leiðin í Dalasetur í Unadal þar sem þátttakendur áttu notalega stund yfir kaffi og meðlæti. Þar gafst fólki einnig tækifæri til að spjalla saman og njóta samverunnar áður en haldið var heim á leið.

Myndir/Félag eldri borgara Siglufirði