Aðsókn í sundlaugar í Skagafirði s.l. sumar var með miklum ágætum framan af sumri þar sem greinilegt var að Íslendingar voru duglegir að heimsækja laugarnar.

Sér í lagi var ánægjulegt að sjá fjölgun gesta í laugunum á Sauðárkróki og í Varmahlíð, en metfjöldi gesta sótti sundlaugina í Varmahlíð í sumar.

Í lok sumars var fækkun gesta aðeins -2,5% milli ára þar sem langmestu munar um fækkun erlendra gesta.

Sveitarfélagið Skagafjörður hvetur heimamenn svo áfram til þess að nýta sundlaugarnar sér til heilsubótar.