Heilbrigðisstofnun Norðurlands sinnir öllum heilsugæslum á Norðurlandi, frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri, auk þess að sinna íbúum á dvalar-, sjúkra- og hjúkrunardeildum.

Undanfarnar vikur hefur verið mikið álag á starfsfólki HSN vegna COVID-19 faraldursins. Sem dæmi má nefna að á hverjum einasta degi eru tugir COVID sýna tekin frá íbúum, ótal símtölum svarað ásamt því sem veikum skjólstæðingum er sinnt eftir sem áður.

Þetta eru tímar sem eru vægast sagt öðruvísi og starfsfólk allt hefur sýnt ótrúlegan skilning og dugnað og leyst hvert verkefnið á fætur öðru af alúð, fagmennsku og í mikilli samvinnu.

Mörg fyrirtæki hafa sent góðar kveðjur og gjafir til starfsmanna HSN svo sem Ölgerðin, Dominos og nú síðast Bio Effect á Íslandi og er þeim færðar bestu þakkir fyrir.

Mynd: HSN