Fimmtudaginn 13. febrúar heimsóttu nemendur tíunda bekkjar í Þelamerkurskóla MTR og kynntu sér nám og námsaðstæður í skólanum.

Lára skólameistari, Inga stærðfræðikennari og Bergþór kennari í listgreinum tóku á móti hópnum, sögðu frá og svöruðu spurningum.

Lára og Inga voru á staðnum en Bergþór nýtti tæknina og tók þátt í gegn um nærveru frá Gautaborg.

Nemendur voru mjög áhugasamir og greinilegt að þeim leist vel á nýtingu skólans á upplýsingatækni við námið sem og fjölbreytnina í námsmati. Það olli þeim hins vegar vonbrigðum að ekki er heimavist við skólann.

Af mtr.is, myndir GK