Lið Grunnskóla Húnaþings vestra sýndi góðan árangur í skólahreysti í gær og hafnaði í 3. sæti í sínum riðli.
Skólahreysti er liðakeppni á milli grunnskóla landsins. Hvert lið samanstendur af tveimur strákum og tveimur stelpum sem öll þurfa að vera nemendur í 9. og/eða 10. bekk.
Keppendur skipta á milli sín keppnisgreinum. Annar strákurinn spreytir sig á upphífingum og dýfum og hinn tekur hraðaþraut. Eins er með stelpurnar, önnur tekur armbeygjur og hreystigreip og hin hraðaþraut.
Tveir skólar keppa samtímis í þrautum nema hreystigreip en þar takast á fimm til átta skólar í einu. Í hraðaþraut fer stelpan fyrst af stað og þegar hún lýkur hringnum inni í bíl má strákurinn fara af stað. Samanlagður tími þeirra gildir.
Mynd/ Húnaþing vestra