Á vegum SSNV var á árunum 2020 og 2021 ráðist í að hnitsetja fjölda gönguleiða á Norðurlandi vestra.
Var verkefnið áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshlutans.
Gengnar voru ríflega 20 gönguleiðir í Húnaþingi vestra sem vert er að vekja athygli á.
Gönguleiðirnar eru eftirfarandi með hlekkjum á slóðir á Wikiloc:
Frá Káraborg að Klömbrum í Vesturhópi
Að Bergárfossi frá Hrappsstöðum í Víðidal
Að fossinum Steinboga frá Dæli í Víðidal
Ánastaðastapi við Vatnsesveg að Skarðsvita
Selárgil við Fögrubrekku í Hrútafirði
Frá Brandagili í Hrútafirði að Húki í Miðfirði
Gamli þjóðvegurinn yfir Hrútafjarðarháls frá Reykjum að Sveðjustöðum
Langafit við Laugarbakka í Miðfirði
Lombervegur frá Efri-Núpi í Miðfirði