Vegna aukningu á fjölda inniliggjandi sjúklinga og veikinda starfsmanna með COVID-19 verður því miður að bregðast við með eftirfarandi hertum reglum tímabundið á Sjúkrahúsinu á Akureyri:

  • Grímuskylda er á alla heimsóknargesti.
  • Einn gestur leyfður í heimsókn í einu og gestir beðnir að virða heimsóknartímann.
  • Grímuskylda á alla starfsmenn við umönnun.

Reglurnar verða endurskoðaðar þann 19 desember.