Ennþá eru til u.þ.b 100 eintök af hinu geysivinsæla Siglfirska jólaskrauti.

Pantanir hafa nú flestar verið afgreiddar annað hvort með því að þær hafa verið sóttar á höfuðborgarsvæðinu, sendar í pósti til allra staða utan höfuðborgarsvæðisins og Siglufjarðar, eða með afhendingu á Siglufirði.

Sala á Siglufirði.

Júlía Birgisdóttir Laugarvegi 24 formaður sóknarnefndar og Systrafélags Siglufjarðarkirkju er með skrautið til sölu hjá sér og er hægt að hringja í hana og panta.

Ennfremur er það til sölu hjá Ásu ogh Hugborgu í Siglufjarðarapoteki.

Höfuðborgarsvæðið, landið og heimurinn 

Á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar á landinu ( líka heiminum ) er hægt að panta hjá Oddnýju og Kristjáni Möller í tölvupósti kristjan@moller.is eða í síma 864 2133 og annaðhvort sækja til þeirra eða fá sent í pósti.

Athugið. Ekki verður framleitt meira að þessu vinsæla Siglfirska jólaskrauti, því er um að gera að tryggja sér eintak/eintök meðan birgðir endast.

Jólaskrautið kostar kr 4.000 + sendingskostnaður ef hann þarf.

Minnt er á að allt söluandvirði skrautsins rennur til viðhalds Siglufjarðarkirkju.