Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á vestur- og norðurhluta landsins vegna hvassviðrisins sem skellur á landið í kvöld.

Gular viðvaranir hafa þannig verið gefnar út á Faxaflóa, höfuðborgarsvæðið, Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi og á Miðhálendi.

Spáð er suðvestan fimmtán til 23 metrar á sekúndu og vindhviðum víða yfir þrjátíu metrum á sekúndu. Má reikna má að aðstæður verði varasamar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.

Fólk er hvatt til að ganga frá lausamunum eins og garðhúsgögnum og trampólínum.

Norðurland eystra: Suðvestan hvassviðri eða stormur (Gult ástand). 24. sep. kl. 19:00 – 25. sep. kl. 07:00.
Strandir og Norðurland vestra: Suðvestan hvassviðri eða stormur og rigning (Gult ástand). 24. sep. kl. 18:00 – 25. sep. kl. 06:00.
Höfuðborgarsvæðið: Suðvestan hvassviðri eða stormur og rigning (Gult ástand). 24. sep. kl. 21:00 – 25. sep. kl. 06:00
Faxaflói: Suðvestan hvassviðri eða stormur og rigning (Gult ástand). 24. sep. kl. 21:00 – 25. sep. kl. 06:00.
Breiðafjörður: Suðvestan hvassviðri eða stormur og rigning (Gult ástand). 24. sep. kl. 18:00 – 25. sep. kl. 08:00.
Vestfirðir: Suðvestan hvassviðri eða stormur og rigning (Gult ástand). 24. sep. kl. 17:00 – 25. sep. kl. 06:00.
Austurland að Glettingi: Suðvestan hvassviðri eða stormur (Gult ástand). 24. sep. kl. 22:00 – 25. sep. kl. 09:00.
Miðhálendið: Suðvestan stormur (Gult ástand). 24. sep. kl. 18:00 – 25. sep. kl. 07:00.

Mynd/Veðurstofan