Í gærkvöldi kom saman fjöldi manns á einsöngstónleika í Tjarnaborg Ólafsfirði. Tónleikarnir voru í boði Jóns Þorsteinssonar óperusöngvara og söngkennara sem búsettur er í Ólafsfirði, tónleikarnir eru hans framlag til Markaðsstofu Ólafsfjarðar og verða þeir árlegur viðburður héðan í frá þann 13. janúar.

Maurice Rommers flutti ítölsk lög, Schubert, skandinavísk lög, þar á meðal Sibelius, og íslensk lög við undirleik Tamir Chasson.

Maurice Rommers sem er af hollenskum uppruna lærði hjá Jóni frá unga aldri og hefur hann komið sjö sinnum til Íslands á undanförnum árum. Hann flutti í fyrsta sinn íslensk lög við mikinn fögnuð áheyrenda og í fyrsta laginu Lítill fugl eftir Sigfús Halldórsson spilaði Ave Kara Sillaots organisti í Ólafsfjarðarkirkju undir á harmonikku.

Megi Jón Þorsteinsson hafa þökk fyrir sitt framlag til menningar í Fjallabyggð.

 

Maurice Rommers óperusöngvari

 

Tamir Chasson undirleikari

 

Ave Kara Sillaots lék undir á harmonikku

 

Hér syngur Maurice Rommers Lítinn fugl eftir Sigfús Halldórsson

 

Sungið með mikilli innlifun

 

Jón Þorsteinsson var fenginn til að syngja með og var því ákaft fagnað í salnum

 

Salurinn klappaði og hrópaði fyrir listamönnunum að lokum

 

 

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir