Hægeldað nautachilli

  • 1,2 kg nautakjöt
  • 1 tsk salt
  • 150 g beikon
  • 2-3 msk ólívuolía
  • 1 laukur, fínhakkaður
  • 2 chili, fínhökkuð
  • 2 hvítlauksrif, fínhökkuð
  • 400 g hakkaðir tómatar í dós (1 dós)
  • 1 msk limesafi
  • 4 dl vatn
  • 1 msk maizenamjöl + vatn
  • salt og pipar

Kryddblanda

  • 1 msk chilikrydd
  • 2 tsk cumin
  • 1 tsk oreganó
  • 0,5 dl vatn

Skerið mestu fituna af nautakjötinu og skerið kjötið síðan í 3 cm þykka bita. Saltið með 1 tsk af salti og blandið saman í skál. Leggið til hliðar.

Blandið kryddum í kryddblöndunni saman og leggið til hliðar.

Steikið beikonið á djúpri pönnu á miðlungsháum hita þar til það verður stökkt. Takið beikonið af pönnunni og leggið til hliðar. Setjið beikonsteikingarfituna í skál og geymið.

Steikið kjötið í skömmtum í blöndu af beikonsteikingarfitu og ólívuolíu. Steikið þar á eftir fínhakkaðan laukinn. Bætið hökkuðu chili og hvítlauk á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur til viðbótar. Bætið þá kryddblöndunni á pönnuna og steikið áfram í nokkrar mínútur.

Bætið nautakjöti, hökkuðum tómötum, limesafa og vatni á pönnuna. Setjið lok yfir og látið chiliréttinn sjóða við vægan hita í 2 klukkustundir. Bætið beikoni saman við undir lokin og látið sjóða með síðustu 5 mínúturnar.  Blandið maizenamjöli og smá vatni saman í skál og hrærið saman við chiliréttinn. Látið sjóða aðeins áfram, rétturinn mun þykkna við þetta. Smakkið til með salti og pipar.

Berið strax fram eða látið réttinn standa í ísskáp í 2-3 daga – hann verður bara betri við það!

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit