Loðnuleiðangri 5 skipa lauk nú um helgina. Hafís náði yfir stóran hluta rannsóknasvæðis og sýnt þykir að mun minna magn mældist af loðnu en í desember síðastliðinn. Verið er að vinna úr gögnum og stofnmat liggur ekki fyrir en engu að síður er orðið ljóst að ekki verði breyting á ráðgjöf sem byggði á mælingu í desember.
Fyrirhugað er að endurtaka mælingar þegar aðstæður leyfa með tilliti til hafíss, veðurs og útbreiðslu loðnu segir á vefsíðu Hafrannsóknarstofnunnar.
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson munu geta lagt í leiðangur með stuttum fyrirvara og í kjölfarið verður metin þörf á mögulegri aðkomu fleiri skipa.
Mynd/Sigmund av Teigum