Á 1182. fundi byggðarráðs Húnaþings vestra sem fram fór þann 26. júní sl. var úthlutað úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra í tíunda sinn. Tvö verkefni hlutu styrk: 

Kaupfélag Vestur-Húnvetninga f.h. óstofnaðs félags í verkefnið Skógarplöntur, kr. 1.000.000
Handbendi brúðuleikhús til verkefnisins Listamannadvöl á Hvammstanga – Markaðssókn, kr. 1.000.000

Samningar um verkefnin hafa verið undirritaðir. Styrkhöfum er óskað til hamingju með styrkinn og góðs gengis með verkefnin.

Atvinnu- og nýsköpunarsjóður Húnaþings vestra var stofnaður árið 2014. Frá stofnun hafa 27 verkefni hlotið styrk samtals að upphæð um 18 milljónir króna. Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í sveitarfélaginu. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar. Úthlutað er úr sjóðnum einu sinni á ári.

Björn Líndal kaupfélagsstjóri og Unnur Valborg sveitarstjóri við undirritun samningsins um styrk til skógarplöntuverkefnis.

Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna hér. 

Forsíðumynd: Greta Clough stofnandi Handbendis og Unnur Valborg Sveitarstjóri við undirritun samningsins um styrkt til markaðssetningar listamannadvalar á Hvammstanga.


Myndir/Húnaþing vestra