Í dag, laugardaginn 9. apríl kl.14 opnar Haraldur Ingi Haraldsson sýningu á nýjum verkum í Deiglunni í Listagilinu á Akureyri.
Verkin eru flest unnin á plastdúk með akríllitum og klipptækni.
Á meðan á sýningunni stendur kemur út 1 stutt vídeó á dag þar sem Haraldur segir frá verkunum á sýningunni og spilar á heimasmíðaða 3 strengja CB gítara. Þau er birt á Facebook síðunni DEIGLAN 22 SÝNING. Með því að smella læki á síðuna þá er viðkomandi með alla leið.
Sýningin er opin eins og vinnustofa. Það er á meðan að listamaðurinn er á staðnum. Um helgar frá sirka 10 til 21 og á vinnudögunum frá 16 til 21. Í vídeóunum er alltaf sagt frá opnunartíma sama dag og þau koma út og daginn eftir.
Haraldur Ingi hefur haldi hátt á 4 tug einkasýninga. Hann er menntaður í myndlist frá Myndlista og handíðaskóla Íslands og frá AKI Akadeimie voor Beeldende Kunst í Enchede, Hollandi og frá De Frie Acadeimie Pshykopolis í Den Haag, Hollandi.
Haraldur Ingi hefur starfað innan myndlistarfagsins stóran hluta starfsferils síns. Hann var fyrsti forstöðumaður Listasafnsins á Akureyri og starfar nú sem verkefnastjóri við Safnið.




