Hátíð sem halda átti í tengslum við tendrun jólaljósa jólatrjánna fyrstu helgi í aðventu, laugardaginn 27. og sunnudaginn 28. nóvember, hefur verið aflýst vegna samkomutakmarkana.

Yngri börn leik- og grunnskóla munu þó gera sér ferð að jólatrjánum  í desember og hengja á þau jólaskraut.

Við minnum á rafrænt aðventudagatal á heimasíðu Fjallabyggðar og hvetjum alla sem ætla að bjóða upp á dagskrá/viðburð á aðventu, að skrá viðburðinn sinn þangað inn. Þannig geta bæjarbúar auðveldlega fylgst með öllu því sem um verður að vera í Jólabænum Fjallabyggð á aðventu, segir á vef Fjallabyggðar