Helgi S. Ólafsson rafvirkjameistari starfaði sem organisti Hvammstangakirkju frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar í hart nær 40 ár.
Árið 1987 hljóðritaði hann 17 vel þekkta jólasálma sem hann lék á pípuorgel Hvammstangakirkju.
Upptakan kom út á kassettu sama ár en síðan árið 2011 var frumupptakan færð yfir á stafrænt form, tónjöfnuð og gefin út á geisladiski.
Orgelið, sem er danskt frá Bruno Christensen, var keypt og smíðað í organistatíð Helga og vann hann ötullega að því af kostgæfni að finna rétta hljóðfærið í kirkjuna og átti stóran þátt í hvernig það er samsett, því plássið er ekki mikið en hann lagði áherslu á að hljóðfærið nýttist vel jafnt til helgihalds og orgeltónleika. Það er mat manna sem til þekkja að vel hafi tekist til við samsetningu orgelsins.
FM Trölli mun flytja diskinn “17 Jólasálmar” í heild í dag, jóladag kl. 13.
Helgi Sæmundur Ólafsson var fæddur á Siglufirði 23. ágúst 1937 en móðir hans, Ingibjörg Sigurðardóttir var fædd og uppalin í Héðinsfirði. Faðir Helga var Ólafur Tryggvason og bjuggu þau lengi í Kothvammi, ofan við Hvammstanga.
Geisladiskinn er hægt að kaupa, og styrkja þannig gott málefni. Þeir sem vilja eignast eintak geta haft samband við Freyju á sjúkrahúsinu á Hvammstanga, sem í dag heitir Heilbrigðisstofnun Vesturlands – HVE. Síminn þar er 432 1300 og vefsíðan: https://www.hve.is/starfsstodvar/hvammstangi/
Forsíðumynd: Kápa geisladisksins, myndataka: Páll Sigurður Björnsson