Í dag, páskadag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu frá hellinum á Kanarí, kl 13.00 – 15.00 GMT.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum frá helli sínum í Angostura gljúfri.

Þau hjónin spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög úr öllum áttum.

Í þættinum spjalla þau Stella Guðrún Ellertsdóttir og Tommi Daníelsson sem búsett eru á Vatnsnesi við Kristínu og Gunnar Smára. Þar kynna þau til leiks splunkunýtt lag sem leikið verður í þættinum.

Stella Guðrún Ellertsdóttir og Tommi Daníelsson

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is