Samkvæmt 13. gr. laga nr. 151/2020 um stjórnsýslu jafnréttismál skulu sveitarstjórnir sjá til þess að sveitarfélagið setji sér áætlun um jafnréttismál. Áætlunin skal lögð fram til samþykktar í viðkomandi sveitarstjórn,  hún rædd árlega og endurskoðuð eftir þörfum. 

Byggðarráð Húnaþings vestra fer með málaflokkinn og hefur nú samþykkt að setja fyrstu drög að nýrri jafnréttisáætlun í opið samráð á heimasíðu sveitarfélagsins. Öll áhugasöm eru hvött til að senda inn ábendingar og athugasemdir fyrir 29. ágúst nk.

Drög að jafnréttisáætlun Húnaþings vestra 2023-2026.

Smelltu hér til að senda inn umsögn.