Plötuspilarinn verður í beinni útsendingu á FM Trölla í dag kl. 17:00.
Oskar Brown sendir þáttinn út frá Studio 7 á Englandi og hann ætlar að bjóða hlustendum Trölla upp á skemmtilega tónlistarblöndu þar sem ægir saman bæði gömlum og nýjum lögum með frábærum flytjendum, víðsvegar að úr heiminum.
Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru Aretha Franklin, Brimkló, Dirty Heads, iLo, Mott The Hoople, GREYSKIES, Pluto Jonze, Sigrid, og Superserious.
Fylgstu með – Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.
FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/
Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á www.skip.trolli.is