Plötuspilarinn verður í beinni útsendingu á FM Trölla í dag kl. 17:00.

Oskar Brown sendir þáttinn út frá Studio 7 á Englandi og hann ætlar að bjóða hlustendum Trölla upp á tónlistarblöndu þar sem ægir saman bæði gömlum og nýjum lögum með frábærum flytjendum, víðsvegar að úr heiminum.

Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru Black Sabbath, Doddi, Dr Gunni og Eiríkur Hauksson, Ellie Goulding, Herbert Guðmundsson, Natalie McCool, Sjana Rut, og The Ordinary Boys.

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á www.skip.trolli.is