Fyrir lá erindi frá Herhúsfélaginu á 877. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar um niðurfellingu fasteignagjalda af húseigninni Tjarnargötu 8 á Siglufirði, Gránufélagshússins í ljósi þröngrar stöðu Herhúsfélagsins.

Ætlunin er að endurbyggja húsið, liggja fyrir teikningar af fyrirhugaðri framkvæmd en hugmynd um endurbyggingu hefur legið fyrir að minnsta kosti síðasta áratug.

Einnig sótti Hálfdán Sveinsson f.h. Herhúsfélagsins um svokallaða Blöndalslóð að Lækjargötu 5 á Siglufirði undir húsið, en af því varð ekki. Sú umsókn vakti umtalsverða athygli og umræðu meðal bæjarbúa á sínum tíma.

Herhúsfélagið sækir um Blöndalslóð á Siglufirði

Bæjarráð samþykkti að fella niður gjöld Herhúsfélagsins af eigninni fyrir árið 2025 í samræmi við gildandi reglur Fjallabyggðar um niðurfellingu eða lækkun fasteignagjalda.

Bæjarráð minnir jafnframt á að slíkar beiðnir skulu berast við gerð fjárhagsáætlunar og samkvæmt auglýsingu þess efnis.