Himneskar humarvefjur
- franskbrauð
- íslenskt smjör
- hvítlaukur, pressaður
- fersk steinselja, hökkuð
- skelflettur humar
Hitið ofn í 180°. Bræðið smjör, hvítlauk og steinselju saman. Skerið skorpuna af brauðsneiðunum, veltið hverri brauðsneið upp úr bræddu smjörblöndunni og fletjið síðan brauðsneiðarnar út með kökukefli. Setjið humar í hverja brauðsneið og rúllið þeim svo upp.
Setjið í eldfast mót og inn í ofn í 8 mínútur.
Gott að bera humarvefjurnar fram með ruccolasalati, smá balsamikgljáa og aioli eða hvítlaukssósu. Gott hvítvínsglas fullkomnar svo máltíðina.

Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit