Glænýtt lag með Hjálmum. Lagið heitir Vor og er samið af Þorsteini Einarssyni söngvara og gítarleikara sveitarinnar.
Lagið er í spilun á FM Trölla.
Hjálmar fagna 20 ára afmæli á þessu ári og í tilefni þess komu þeir fram á Iceland Airwaves í Listasafni Reykjavíkur.
Hjálmar:
Þorsteinn Einarsson, gítar, söngur
Sigurður Guðmundsson, hljómborð, söngur
Helgi Svavar Helgason, trommur
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, bassi
Guðmundur Kristinn Jónsson, gítar
Einnig komu við sögu:
Óskar Guðjónsson, saxófónn
Eiríkur Orri Ólafsson, trompet
Hljóðritað í Hljóðrita, Flóki Studios og Skammakróknum
Myndband við lagið má finna hér.
Lagið á Spotify